13. febrúar 2008
Háskólarnir kynna starf sitt
 |
| Rektorar Listaháskólans, Háskólans á Bifröst og Háskólans í Reykjavík ræðast við á háskóladeginum 2007 |
Kynningin á laugardag verður í Reykjavík. Háskólinn á Bifröst, Landbúnaðarháskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn í Reykjavík, Háskólinn á Hólum og Listaháskóli Íslands verða með sínar kynningar í Ráðhúsi Reykjavíkur við Reykjavíkurtjörn. Þar verður hægt að nálgast kynningarefni og spjalla við nemendur og starfsfólk skólanna.
Háskóli Íslands og Kennaraháskóli Íslands verða með kynningu á Háskólatorgi HÍ og í Norræna húsinu verður sérstök kynning á framhaldsnámi í Danmörku.
Þann 27. febrúar verða skólarnir með sameiginlega kynningu í Verkmenntaskólanum á Akureyri, þann 28. í Menntaskólanum á Egilsstöðum og loks í Menntaskólanum á Ísafirði og Háskólasetri Vestfjarða þann 5. mars.
Nánar um háskóladaginn hér.