Fréttir
11. febrúar 2008

SÍS og lögmannaskrifstofan LOGOS veita verðlaun

Rektor afhendir Unni Kristínu Sveinbjarnardóttur verðlaun fyrir hönd LOGOS
Sú hefð hefur skapast við útskriftir úr Háskólanum á Bifröst að SÍS veitir verðlaun fyrir hæstu einkunn á lokaprófi í grunnnámi og  LOGOS lögmannsþjónusta veitir verðlaun fyrir hæstu einkunn í meistaranámi í lögfræði. 

Verðlaunin hlutu að þessu sinni þær Sigrún Ósk Kristjánsdóttir BA úr félagsvísindadeild og Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir ML.

Sigrún Ósk tók nýverið við starfi ritstjóra héraðsfréttablaðsins Skessuhorns og Unnur Kristín starfar sem lögfræðingur á nefndasviði Alþingis.

Verðlaunin nema 150 og 250 þúsund krónum.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri