8. febrúar 2008
Útskrift nemenda frá Háskólanum á Bifröst
 |
| Úr háskólaþorpinu |
40 nemendur verða útskrifaðir frá Háskólanum á Bifröst laugardaginn 9. febrúar. Athöfnin, sem verður í Hriflu, hefst kl. 14.00. Hátíðarræðu flytur dr. Ágúst Einarsson, rektor og nemendur úr Tónlistarskóla Borgarfjarðar koma fram undir stjórn Ólafs Flosasonar.
Að þessu sinni útskrifast 27 nemendur úr grunnnámi í viðskipta-, laga- og félagsvísindadeildum og 13 úr meistaranámi.