Fréttir
8. febrúar 2008

Rannsókn á verslun í dreifbýli á Norðurslóðum

Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar
Nú er að hefjast samstarfsverkefni Íslendinga og annarra norrænna þjóða um að leita lausna á vanda dreifbýlisverslunar á Norðurslóðum. Gerð verður greining á mismunandi tegundum smásöluverslana í dreifbýli og fundnir þeir þættir sem mestu máli skipta um velgengni þeirra. Rannsóknasetur verslunarinnar við Háskólann á Bifröst stjórnar verkefninu en mótun og undirbúningur þess var unninn í samstarfi við Byggðastofnun.

NORA, Norræna atlantssamstarfið, styrkir verkefnið auk þess sem Norðurslóðaáætlunin, Northern Periphery Programme, hefur samþykkt að veita verkefninu undirbúningsstyrk. Fyrsti hluti verkefnisins verður unninn á fjórum mánuðum og felur í sér þarfagreiningu og fullmótaða verkáætlun fyrir meginverkefnið. Í fyrsta áfanga verkefnisins taka þátt, auk Íslendingfa; Finnar, Norðmenn og Færeyingar. Þá verður unnið að þátttöku fleiri þjóða og lögð sérstök áhersla á þátttöku Grænlendinga og Skota. Gert er ráð fyrir að meginverkefnið muni taka þrjú ár. Þeir aðilar sem koma að verkefninu frá þátttökuþjóðunum eru háskólastofnanir, byggðaþróunarstofur líkt og Byggðastofnun og aðrir sérfræðingar á sviði verslunar og byggðaþróunar. Þá verður unnið í nánu samstarfi við verslanir, atvinnuþróunarfélög og aðra hagsmunaaðila.

Öll lönd sem byggja Norðurslóðir eiga við það vandamál að stríða að illa gengur að reka smásöluverslanir í fámennum byggðalögum. Verslanir eru samt einn grunnþáttur þess að fólk geti búið í þessum byggðalögum. Mikil hætta er á að þegar eina verslunin í litlu byggðalagi hættir starfsemi þá flytjist þaðan íbúarnir. Þess vegna verða stjórnvöld oft að grípa til stuðningsaðgerða eða annarra neyðarráðstafana til að halda versluninni gangandi. Á hinn bóginn er ekki heldur viðunandi fyrir rekstraraðila verslana að reka fyrirtæki sitt með tapi.

Verkefnið sem nú er að hefjast miðar að því að finna lausnir sem gagnast öllum hlutaðeigandi; stjórnvöldum, verslunareigendum og íbúum staðanna. Nifðurstöðurnar verða nýttar í formi ráðgjafar og kennsluefnis í hverju þátttökulandanna. 

Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar við Háskólann á Bifröst stýrir verkefninu. 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri