Fréttir
4. febrúar 2008

Evrópufræðasetur í viðamiklu alþjóðlegu verkefni

Eiríkur Bergmann Einarsson er forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst
Evrópufræðasetur Háskólans á Bifröst hefur ásamt 65 háskólastofnunum víðsvegar í Evrópu gengið frá samningi við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um að koma á fót samstarfsneti Evrópufræða í álfunni. 

 

Í þessu viðamikla fjölþjóðlega verkefni koma færustu fræðimenn á sviði Evrópufræða (frá 66 háskólum í 30 Evrópuríkjum) saman og mynda með sér formlegan samstarfsvettvang til að vinna að sameiginlegum rannsóknum. (Sjá vefsvæði SENT-verkefnisins: http://www.sent-net.uniroma2.it/)

 

SENT-verkefnið er til þriggja ára og er styrkt af Erasmus - menntaáætlun Evrópusambandsins. Samstarfsnet af þessu tagi eru til í ýmsum fræðigreinum en þetta er í fyrsta sinn sem komið er á slíku neti í Evrópufræðum (e. European studies). Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins taldi mikilvægt að koma á slíkum vettvangi og draga saman á einn stað það sem best er gert á þessu fræðasviði í álfunni.

 

Meðal verkefna Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst  verður að hafa umsjón með fjölþjóðlegri rannsókn á ólíkum tengslum Norðurlandanna við Evrópusamrunann.

 

Meðal þátttakenda í SENT eru til að mynda Háskólinn í Róm, Johns Hopkins háskóli, Kaþolski háskólinn í Leuven, Háskólinn í Árósum, Háskólinn í Ankara og Háskólinn í Maastricht. 

 

Evrópufræðasetur Háskólans á Bifröst er eini íslenski þátttakandinn í verkefninu. Þátttaka í verkefninu er mikilvæg viðurkenning á starfi Evrópufræðasetursins síðastliðin ár. Með SENT verkefninu opnast einnig nýjar leiðir fyrir meistaranema í Evrópufræðum við háskólann á Bifröst að vinna að alþjóðlegum verkefnum og taka hluta af námi sínu við erlenda háskóla.

 

Upplýsingar um meistaranám í Evrópufræðum við Háskólann á Bifröst.

 

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Bergmann Einarsson, dósent og forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst, í síma 6 98 88 78.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri