5. febrúar 2008
Námskeið í verðbréfaviðskiptum fyrir almenning
Samtök fjárfesta bjóða upp á námskeið fyrir almenning í verðbréfaviðskiptum. Námskeiðið, sem líka er boðið upp á í Reykjavík og á Akureyri, verður haldið í Háskólanum á Bifröst þann 6. febrúar. Öllum er heimil þátttaka í boði Samtaka fjárfesta. Námskeiðið verður haldið í Hriflu og hefst klukkan 15.00.
Eftirfarandi spurningar verða ræddar á námskeiðinu:
Eru verðbréfaviðskipti aðeins á færi sérfræðinga?
Get ég mótað mínar skoðanir um verðbréfaeign mína?
Á ég að fara á taugum þegar verðbréf lækka?
Á ég að kaupa, selja eða staldra við þegar verðbréf hækka?
Fyrirlesari er Claus Silfverberg, framkvæmdastjóri PRISAS og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta í Danmörku, Dansk Aktionærforening. Námskeiðið verður haldið á ensku.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til : vb@hi.is