Fréttir
1. febrúar 2008

Málþing Háskólans á Bifröst og Þekkingarnets Austurlands

Framtíð Austurlands - Menntun, orka og tækifæri er yfirskrift málþings sem Háskólinn á Bifröst og Þekkingarnet Austurlands standa að í sameiningu. Fjallað verður um breytta atvinnuhætti á Austurlandi og þróun þekkingarsamfélagsins með auknu framboði á menntun, breyttum áherslum í námi og námsleiðum er lagaðar eru að þörfum nemenda.

Málþingið fer fram í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði, þann 6. febrúar 2008 frá kl. 15:15 til 17:15.

 

Frummælendur eru:

Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar - Nýting orkulindanna skapar ný tækifæri í menntun og atvinnu.

 

Stefanía G. Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Þekkingarnets Austurlands - Þjónusta við þekkingarsamfélagið.

 

Dr. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Háskólann á Bifröst - Hvar liggja tækifæri Austfirðinga?

 

Einar Rafn Haraldsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands - Fjarnám fyrir fólk á öllum aldri.

 

Pallborðsumræður.

 

Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri Fjarðarbyggðar annast samantekt á erindi og umræðum. Fundarstjóri er dr. Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst.

 

Dagskrá málþingsins verður útvarpað í Svæðisútvarpi Austurlands.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri