Fréttir
4. febrúar 2008

Agnes Bragadóttir talar um rannsóknarblaðamennsku

Agnes Bragadóttir, blaðamaður
 Agnes Bragadóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu, fjallar um rannsóknarblaðamennsku á málstofu næstkomandi þriðjudag, þann 5. febrúar.
Agnes fjallar um þær aðferðir sem hafa reynst henni best og erfiðleika og hindranir sem hafa mætt henni í rannsóknarblaðamennsku. Hún greinir frá vinnubrögðum sínum við tvo greinaflokka sem hún hefur unnið og falla undir skilgreiningu á rannsóknarblaðamennsku. Fyrri greinaflokkurinn er um endalok Sambandsins og birtist í mars 1995 og sá seinni um baráttuna um Íslandsbanka og birtist í ársbyrjun 2003. Báðir birtust greinaflokkarnir í fjórum hlutum í Morgunblaðinu.
Að loknu erindi Agnesar verða fyrirspurnir og umræður.
Málstofan hefst klukkan 15.30 og er öllum opin.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri