Fréttir
12. desember 2007

Hvers vegna EES en ekki ESB?

Í opinberri stjórnmálaumræðu hefur því gjarnan verið haldið fram að Ísland geti ekki gengið í Evrópusambandið vegna þess að sjávarútvegsstefna ESB sé andstæð íslenskum hagsmunum. Í þessari grein er þvert á móti spurt hvort verið geti að aðrar breytur, svo sem hugmyndir Íslendinga um fullveldið og sjálfstæði þjóðarinnar, skýri jafnvel betur hvers vegna Ísland hefur aldrei sótt um aðild að ESB? Höfundurinn ætlar sér ekki  að svara þessari stóru spurningu í eitt skipti fyrir öll í þessari stuttu grein heldur aðeins að gera tilraun til að einangra þá breytu sem mestu skiptir að rannsaka frekar í viðleitni til að að meta hvers vegna Ísland hefur kosið að standa fyrir utan stofnanir ESB.

Tímarit um félagsvísindi er gefið út af Háskólanum á Bifröst. Ritstjóri er dr. Grétar Þór Eysteinsson, prófessor.

 

Greinina má lesa hér

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri