13. desember 2007
Matarskattur og verðlag
Emil B. Karlsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar við Háskólann á Bifröst, hefur tekið saman upplýsingar um verðlag og neyslu á matvörum. Niðurstöður hans má finna í grein sem birt er á vef Rannsóknaseturs verslunarinnar.
Fyrir ári síðan áætlaði Hagstofa Íslands að meðalútgjöld heimilanna til kaupa á mat og drykkjarvöru væru 12,9% af heildarútgjöldum heimilanna og hafði þá farið lækkandi um nokkurt skeið. Bráðlega verða birtar nýjar tölur og þá má ætla að hlutfallið lækki enn töluvert. Þetta má lesa úr þeim upplýsingum sem Hagstofan safnar og notar við sundurliðun neysluútgjalda og neysluverðsvísitölu. Þó hlutfall matarútgjaldanna fari minnkandi í samanburði við aðra útgjaldaliði er það ekki vegna þess að verðlag á matvælum fari lækkandi heldur hækka aðrir liðir, eins og húsnæðiskostnaður, mun hraðar.