Fréttir
6. desember 2007

Útskrift nema frá símenntunardeild Háskólans á Bifröst

Miðvikudaginn 5. desember útskrifuðust 16 nemar frá símenntunardeild Háskólans á Bifröst. Fjórir nemar  útskrifuðust með diplóma í verslunarstjórnun og 12  af námskeiðinu Upplýsingatækni og bókhald sem haldið var í samvinnu við Símenntunarmiðstöðina á Vesturlandi og Visku fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja .  Athöfnin var með hátíðlegu sniði. Ágúst Einarsson hélt ræðu og útskrifaði nema. Í ræðu sinni  kom rektor m.a. inn á mikilvægi menntunar og hvatti nemendur til að nýta sér þá möguleika sem þeim stæðu opnir.

 

Allt útskrifuðust 4 nemar með diplóma í verslunarstjórnun. Björn Björnsson fékk verðlaun frá Samtökum verslunar og þjónustu fyrir góðan námsárángur.

Alls útskrifuðust 12 nemar af námskeiðinu Upplýsingatækni og bókhald.  

Inga Dóra Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi flutti hátíðarræðu.

Þetta er í annað sinn sem Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi og Háskólinn á Bifröst eru í samstarfi með þetta námskeið. Viska, fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja tók þátt í samstarfinu að þessu sinni en 8 nemendur útskrifuðust frá Vestmannaeyjum. Í tilefni af útskriftinni hélt Ágúst Einarsson rektor til Vestmannaeyja og útskrifaði nemendur með formlegum hætti.  

 

 

 

 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri