6. desember 2007
Emil B. Karlsson talar á fundi hjá Stjórnvísi
Emil B. Karlsson forstöðumaður Rannsóknaseturs verslunarinnar við Háskólann á Bifröst heldur erindi á fundi hjá Stjórnvísi föstudaginn 7.12. nk. Þar fjallar hann um aðgerðir til að auka samkeppnishæfi þjónustu með öflugu nýsköpunarstarfi.
Stjórnvísi er félag sem miðlar þekkingu um stjórnun og árangursríkar stjórnunaraðferðir og er markmið þess að stuðla að umbótum í stjórnun íslenskra fyrirtækja með miðlun þekkingar og reynslu meðal stjórnenda.
Fundurinn verður haldinn í Háskólanum í Reykjavík, Kringlunni 1 eða gamla Morgunblaðshúsinu og stendur frá 8.30 - 10.00. Hann er öllum opinn.