Fréttir
3. desember 2007

Dansað kringum jólatréð á háskólatorgi

Gluggagægir og Hurðaskellir komu færandi hendi
Ljósin á jólatrénu á háskólatorgi voru tendruð í dag og af því tilefni söfnuðust íbúar háskólaþorpsins og nágrennis saman, gengu kringum tréð og sungu jólalögin. Börn og fullorðnir tóku hressilega undir sönginn og Þórir Páll Guðjónsson lék með á harmonikku. Bræðurnir Gluggagægir og Hurðaskellir komu færandi hendi með sælgæti handa öllum góðu börnunum. Nokkra athygli vakti hvað þeir voru í fínum skóm og í ljós kom að þeir höfðu orðið sér úti um nýja skó fyrir skömmu til að nota á þeim miklu ferðalögum sem bíða þeirra á næstu vikum.

Þegar jólasveinarnir höfðu kvatt var öllum viðstöddum boðið upp á súkkulaði með rjóma og smákökur á Kaffi Bifröst.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri