4. desember 2007
Takmarkanir á samningsrétti opinberra starfsmanna
Í nýrri grein í Tímariti um félagsvísindi fjallar Elín Blöndal, dósent og forstöðumaður Rannsóknaseturs vinnuréttar- og jafnréttismála, um takmarkanir á samningsrétti opinberra starfsmanna.
 |
| Elín Blöndal |
Til að geta öðlast samningsrétt samkvæmt lögum nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna, þurfa stéttarfélög að uppfylla tiltekin skilyrði. Í greininni er fjallað um þessi lagaskilyrði í ljósi stjórnarskrárinnar og alþjóðlegra sáttmála auk þess sem vikið er að dómum Félagsdóms. Bent er á að þrátt fyrir að takmarkanir á samningsaðild samkvæmt lögum nr. 94/1986 byggist út af fyrir sig á málefnalegum sjónarmiðum geti beiting þeirra í einstökum tilvikum falið í sér brot á stéttarfélagafrelsinu, sbr. 1. mgr. 74. gr. stjórnarskrárinnar. Félagsdómur hefur í nokkrum málum vikið tilteknum skilyrðum laga nr. 94/1986 til hliðar í ljósi meginreglunnar um samningsfrelsi. Í ljósi dóma Mannréttindadómstóls Evrópu ber einnig að skoða aðstöðu stéttarfélags í sérhverju máli með tilliti til þess hvort svigrúm þess til að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og fá áheyrn um málefni þeirra hafi verið skert um of. Við ákvarðanir stjórnvalda um hvort tiltekið stéttarfélag geti átt samningsrétt verði því að líta heildstætt til þess hver staða stéttarfélagsins er í framangreindum skilningi. Njóti stéttarfélag t.d. ekki verkfallsréttar eru líkur til þess að synjun um samningsrétt því til handa feli í sér óhóflega skerðingu á réttindum þess til að gæta hagsmuna félagsmanna sinna.
Tímarit um félagsvísindi er gefið út af Háskólanum á Bifröst. Ritstjóri er dr. Grétar Þór Eyþórsson, prófessor.