Fréttir
30. nóvember 2007

Aðalfundur Hollvinasamtaka Háskólans á Bifröst

Aðalfundur Hollvinasamtaka Háskólans á Bifröst var haldinn þann 28. nóvember síðastliðinn á Kornhlöðuloftinu í Reykjavík.  Að sögn Þóris Páls Guðjónssonar tengiliðs Háskólans á Bifröst við Hollvinasamtökin var fundurinn afar góður og málefnalegur og þokkalega sóttur.

Stjórnarformaðurinn Gunnar Axel Axelsson flutti skýrslu stjórnar þar sem hann rakti helstu mál sem stjórnin fjallaði um frá síðasta aðalfundi og gerði grein fyrir viðfangsefnum félagsins s.s. gerð og opnun heimasíðu, útgáfu fréttabréfs, samantekt á gagnagrunni um útskrifaða nemendur, skipan fulltrúaráðs, undirbúningi að gerð heimildarmyndar um skólastarf á Bifröst,  golfmót, undirbúning fyrir 50 ára afmæli samtakanna og 90 ára afmæli skólans á næsta ári  o.fl.

 

Jóhannes Veldemarsson gjaldkeri lagði fram endurskoðaða reikninga og gerði grein fyrir fjárhagsstöðunni.  Gat hann sérstaklega um styrki sem samtökunum hafa borist frá Háskólanum á Bifröst og SPRON.  Einnig greindi hann frá því að öllum hollvinum sem eru með heimabanka hefur verið send valfrjáls krafa að upphæð 1.000 kr. vegna væntanlegs afmælishalds á næsta ári.

 

Andrés Magnússon, fulltrúi hollvina í stjórn Háskólans á Bifröst, flutti skýrslu um störf stjórnar háskólans og helstu mál sem þar hafa verið til umfjöllunar á árinu.

 

Dr. Ágúst Einarsson flutti mjög gott erindi þar sem hann kynnti starfsemi skólans í dag og sagði frá helstu áformum í náinni framtíð.  Líflegar umræður urðu um erindi Ágústs og lýstu fundarmenn miklum áhuga á starfsemi skólans og stuðningi við þær hugmyndir sem fram komu í máli Ágústs. 

 

Gunnar Axel Axelsson fráfarandi stjórnarformaður var endurkjörinn á fundinum með lofaklappi. Þá voru  Hallur Magnússon og Kristmar Ólafsson endurkjörnir í varastjórn og Sævar Þ. Sigurgeirsson og Helga Arngrímsdóttir sem endurskoðendur.

 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri