28. nóvember 2007
Fyrsti útskriftarhópur af námskeiðinu Máttur kvenna II
 |
| Fyrsti útskriftarhópur úr Mætti kvenna II ásamt Bryndísi Hlöðversdóttur aðstoðarrektor og Huldu I. Rafnarsdóttur verkefnisstjóra símenntunar |
Laugardaginn 24. nóvember útskrifuðust 19 konur af námskeiðinu Máttur kvenna II. Bryndís Hlöðversdóttir aðstoðarrektor hélt háttíðarræðu og útskrifaði konurnar. Í ræðu sinni kom Bryndís m.a. inn á þann ónýtta mannauð sem er fólginn í konum heimsins. Hvatti hún konurnar til að nýta þann stökkpall sem þær stæðu á og nýta hæfileika sína til fullnustu. Boðið var upp á léttar veitingar að athöfn lokinni.
Þetta er í fyrsta skipti sem námskeiðið Máttur kvenna II er haldið en það er framhaldsnámskeið fyrir konur sem áður hafa útskrifast úr Mætti kvenna I. Konurnar á námskeiðinu sóttu vinnufundi á föstudeginum. Á laugardeginum var farið í óvissuferð en það var Ólöf glerlistakona í Brákarey sem tók á móti konunum á vinnustofu sinni. Þar var boðið upp stutta kynningu á starfi listakonunnar en einnig fengu konurnar að spreyta sig við listsköpun.