28. nóvember 2007
Aðventutónlist á háskólatónleikum í dag
Þær Anna Jónsdóttir söngkona og Marion Herrera hörpuleikari koma fram á háskólatónleikum miðvikudaginn í dag. Á efnisskrá tónleikanna eru lög sem tengjast aðventunni sem senn gengur í garð. Tónleikarnir hefjast kl. 17.00 og eru öllum opnir. Aðgangur er ókeypis.
Anna Jónsdóttir er fædd í Reykjavík. Hún lærði við Nýja Tónlistarskólann hjá Alinu Dubik og tók burtfararpróf þaðan vorið 2003. Árið eftir stundaði hún nám við Tónlistarháskólann í Búkarest, þar sem aðalkennari hennar var Maria Slatinaru. Hún lauk svo einsöngvaraprófi frá Nýja tónlistarskólanum í nóvember 2004 undir handleiðslu Alinu Dubik. Anna hélt debut tónleika í Hafnarborg haustið 2006 þar sem meðleikari hennar var Jónas Sen.
Marion Herrera er fædd i Frakklandi. Hún byrjaði að læra á hörpu aðeins 6 ára gömul. Eftir hefðbundið tónlistarnám i Nice, stundaði hún framhaldsnám í París með áherslu á samtímatónlist og útskrifaðist þaðan árið 1994. Marion fluttist til Íslands árið 1996 og starfaði fyrst á Akureyri við tónlistarskólann og spilaði med Sinfoníuhljómsveit Norðurlands. Hún býr nú í Reykjavík og starfar sem hörpuleikari, flugmaður og kennari við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar.
Efnisskrá tónleikanna er á þessa leið:
Hátíð fer að höndum ein Íslenskt þjóðlag
Fræ í frosti sefur Franskt jóla- og nýárslag
Ave María Sigurður Bragason
Jesú mín morgunstjarna Sálmalag frá 16.öld
O come, o come, Emmanuel Franskt lag
Ave Maria Schubert
You never walk alone R. Rodgers
Hörpuleikur
Það á að gefa börnum brauð Jórunn Viðar
Jólavers Egill Gunnarsson
In the bleak midwinter G. Holst.
Ó Jesúbarn blítt J.S.Bach
Það aldin út er sprungið Hugo Distler
Frá ljósanna hásal J.F.Wade
Nóttin var sú ágæt ein Sigvaldi Kaldalóns
Ave María Sigvaldi Kaldalóns
Ó helga nótt A. Adams