Fréttir
22. nóvember 2007

Meistaranám í stjórnun heilbrigðisþjónustu vekur athygli á ráðstefnu um hjúkrunarrannsóknir

María Þorgeirsdóttir umsjónarmaður meistaranáms kynnir nýtt nám í stjórnun heilbrigðisþjónustu
Ráðstefna um hjúkrunarrannsóknir fer fram í dagana 22. og 23. nóvember á Nordica Hilton hótelinu í Reykjavík. Þar fer jafnframt fram kynning á nýju meistaranámi í stjórnun heilbrigðisþjónustu við Háskólann á Bifröst en kennsla í því hefst í janúar nk. Meistaranám í stjórnun heilbrigðisþjónustu er þverfaglegt nám fyrir þá sem vilja öðlast þekkingu og skilning á rekstri og stjórnun í heilbrigðisþjónustu.  Námið tekur á öllum þeim þáttum er lúta að stjórnun og rekstri heilbrigðisstofnana og einkarekinnar heilbrigðisþjónustu. 

María Þorgeirsdóttir umsjónarmaður meistaranáms við Háskólann á Bifröst og Rebekka Rán Samper markaðsstjóri sitja ráðstefnuna á Nordica Hilton og svara fyrirspurnum um hina nýju námsleið.

 

 

 

 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri