26. nóvember 2009
Ljósin á jólatrénu á Háskólatorgi tendruð
Árleg jólatréssamkoma Bifrestinga verður haldin á háskólatorginu þriðjudaginn 1. desember næstkomandi og hefst kl. 16.00.
Jólasveinar koma og dansa í kringum jólatréð, syngja og gefa yngstu krökkunum eitthvað gott.
Eftir sönginn og skemmtunina verður boðið upp á hressingu á Kaffi Bifröst.
Íbúar í nágrenni háskólaþorpsins eru hvattir til að koma með börn sín og taka þátt í gleðinni.