16. nóvember 2007
Félagsmiðstöð unga fólksins í Gauknum
 |
| Það er notalegt í Gauknum eftir endurbætur á húsnæðinu |
Félagsmiðstöðin Hosiló hefur aðstöðu í Þinghamri á Varmalandi og í Gauknum á Bifröst. Nýverið lauk endurbótum á húsnæði Gauksins og hefur aðstaða fyrir börn og unglinga á Bifröst því tekið stakkaskiptum. Gert er ráð fyrir fjölbreyttri starfsemi í Gauknum á næstunni. Þar verður eins og áður segir starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Hosiló en auk þess er gert ráð fyrir að mömmumorgnar og sögustundir fái þar inni. Þá er stefnt að því að kirkjuskóli fyrir yngri kynslóðina hefji göngu sína í desember.
Víðir Pétursson, sem býr ásamt fjölskyldu sinni í háskólaþorpinu, hefur umsjón með félagsmiðstöðinni Hosíló. Alda Baldursdóttir, sviðstjóri húsnæðissviðs mun aðstoða hann í félagsmiðstöðinni og sjá um kirkjuskólann.
Opið hús verður auglýst síðar. Allar hugmyndir að uppbyggilegu félagsstarfi meðal barna og unglinga eru vel þegnar og jafnframt er hæfileikaríkt fólk sem vill taka þátt í starfi með börnum og unglingum hvatt til að hafa samband við þau Öldu og Víði.