Fréttir
15. nóvember 2007

Dagur íslenskrar tungu

Söngfuglar af Hraunborg
Um árabil hefur dagur íslenskrar tungu verið haldinn hátíðlegur þann 16. nóvember á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar.  Í ár eru liðin 200 ár frá fæðingu Jónasar og í  tilefni dagsins efnir foreldrafélag leikskólans Hraunborgar á Bifröst til samkomu í gamla hátíðarsalnum.

Börn af Hraunborg og nemendur í 4. bekk grunnskólans á Varmalandi syngja nokkur lög. Að því búnu verður sýnd myndin Litla lirfan ljóta og boðið upp á veitingar.  

Litla lirfan ljóta er tölvuteiknuð mynd frá árinu 2002 í kvikmyndastjórn Gunnars Karlssonar. Handrit myndarinnar er skrifað af þeim Friðriki Erlingsyni og Gunnari Karlssyni. Myndin hefur hlotið lof bæði innanlands sem utan og hlaut myndin Edduna í flokki stuttmynda árið 2002.

Dagskráin hefst klukkan 14.00.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri