Fréttir
18. nóvember 2007

Spá um jólaverslunina 2007 og jólagjöfin í ár

Jólagjöfin í ár er GPS staðsetningartæki
Rannsóknasetur verslunarinnar spáir því að vöxtur í jólaverslunin verði 9,4% miðað við síðustu jól á breytilegu verðlagi. Það jafngildir því að velta umfram meðaltal ársins verði um 14 milljarðar vegna jólanna eða um 45.500 kr. á hvert mannsbarn.

 Að mati sérskipaðrar dómnefndar er „Jólagjöfin í ár“ að þessu sinni GPS staðsetningartæki. Valið var úr um 60 hugmyndum sem aðallega bárust frá nemendum Háskólans á Bifröst. Meðal forsendna sem liggja að baki vali á jólagjöfinni er að um er að ræða tæki sem fellur vel að tíðarandanum, er vinsælt meðal neytenda og selst vel. 

Skýrslu Rannsóknaseturs verslunarinnar um jólaverslunina í ár sem og norræna skýrslu um sama efni má finna hér á  vef setursins. Íslenska skýrslan er unnin af þeim Emil B. Karlssyni, forstöðumanni Rannsóknarseturs verslunar og Kára Joensen sérfræðingi á rannsóknasetrinu og aðjúnkt við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri