13. nóvember 2007
Heimsókn í bandaríska sendiráðið
 |
| Bifrestingar hlýða á erindi sendiráðsmanna |
Fyrir skömmu fór dr. Duane Lacey, kennari í réttarheimspeki, með tútorhópa sína í heimsókn í bandaríska sendiráðið. Tilgangur heimsóknarinnar var m.a. að kynnast starfi sendiráðsins og samskiptum Íslands og Bandaríkjanna.
Tíu nemendur frá Háskólanum á Bifröst tóku þátt í heimsókninni og þar af voru fimm erlendir skiptinemar sem nú stunda nám á Bifröst. Eftir greinargott inngangserindi sendiráðsmanna gafst nemendum færi á að bera fram spurningar. Margt bar á góma; s.s. þátttaka Íslands í Nató, friðargæsla, stríðið í Írak, hlýnun andrúmslofts, efnahags- og viðskiptaleg samskipti landanna, o.fl., o.fl.
Nemendur létu vel af þessari heimsókn og kváðust hafa fengið greinargóðar upplýsingar og svör við fyrirspurnum.