9. nóvember 2007
Fjölmenni við opnun Samkaupa
 |
| Sturla Eðvarsson framkvæmdastjóri Samkaupa og Anna María Sverrisdóttir leikskólastjóri á Hraunborg |
Íbúar háskólabæjarins á Bifröst fögnuðu því í dag að ný og glæsileg mat- og smávöruverslun var opnuð á svæðinu. Sturla Eðvarðsson, framkvæmdastjóri Samkaupa, ávarpaði gesti og opnaði verslunina formlega. Við þetta tækifæri afhenti hann styrki til leikskólans Hraunborgar, útskriftarfélags Háskólans á Bifröst og til níunda bekkjar grunnskólans á Varmalandi. Nemendur á Hraunborg sungu tvö lög undir stjórn Önnu Maríu Sverrisdóttur, leikskólastjóra. Reynir Kristinsson, forseti viðskiptadeildar, flutti ávarp af hálfu háskólans og fagnaði tilkomu hinnar nýju verslunar. Að því búnu var gestum boðið upp á veitingar og færi gafst á að skoða sig um í búðinni.
Afgreiðslutími í SamkaupStrax á Bifröst verður frá 9 - 18 virka daga og frá 11 - 16 um helgar. Verslunarstjóri er Magnús Snorrason.
Meðfylgjandi myndir tók Friðrik Páll Friðriksson.