Fréttir
7. nóvember 2007

Af hverju ég er ekki kristinn - 2. útgáfa þýðingar Ívars Jónssonar komin út

Ritið Af hverju ég er ekki kristinn eftir breska heimspekinginn Bertrand Russell er komið út í 2. útgáfu, en 1. útgáfa frá árinu 2006 er uppseld. Ívar Jónsson prófessor við Háskólann á Bifröst þýddi ritið. Í ritinu færir Russell rök í anda trúleysingja gegn tilvist guðs og siðferðilegum heilindum Jesú Krists. Ritið er gefið út á prenti og fæst í Bóksölu stúdenta. Auk þess er það birt í stafrænu formi á netslóðinni http://www.bifrost.is/Files/Skra_0011590.pdf

Bertrand Russell (1872 - 1970) var einn þekktasti heimspekingur Breta. Hann var fjölhæfur maður og afkastamikill. Hann skrifaði yfir 70 bækur og um 2000 greinar. Árið 1950 hlaut hann Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Russell var einn helsti forsprakki analýtískrar heimspeki og var einkum þekktur fyrir framlag sitt á sviði rökfræði og heimspeki stærðfræðinnar. Meðal almennings var Russell þekktur fyrir friðarbaráttu sína, en hann var m.a. ötull andstæðingur kjarnorkuvopna og Víetnam stríðsins. Russell var dæmdur í viku fangelsisvist í Bretlandi 1961 fyrir þátttöku í mótmælaaðgerðum gegn stríðinu í Víetnam og ræðu sem hann hélst í Hyde Park, þá 89 ára gamall. Hann var þó einkum frægur fyrir skrif sín um stjórnmál, samfélagsmál og siðferðileg málefni.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri