Fréttir
7. nóvember 2007

Ný verslun opnuð á Bifröst

Föstudaginn  9. nóvember næstkomandi verður ný og glæsileg verslun Samkaupa opnuð í háskólaþorpinu.  Framkvæmdastjóri Samkaupa opnar verslunina og boðið verður upp á veitingar og glaðning fyrir börnin. Auk þess verða ýmsar vörutegundir á sérstöku tilboðsverði í tilefni opnunarinnar.
Gömlu versluninni verður lokað frá kl. 13:00 á morgun. Afgreiðslutími nýju verslunarinnar verður hinn sami og verið hefur á virkum dögum en tilraun verður gerð með breyttan afgreiðslutíma um helgar eða frá 11:00 til 16:00.

Verslun hefur verið rekin á Bifröst um nokkurra ára skeið við afar þröngan húsakost og er því um miklar hagsbætur að ræða, jafnt fyrir starfsfólk sem viðskiptavini. Verslunarstjóri í verslun Samkaupa á Bifröst er Magnús Snorrason.

 

 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri