5. nóvember 2007
Ljósmyndasýning á Kaffi Bifröst
Ljósmyndirnar á sýningunni eru eftir áhugaljósmyndarann Friðrik Pál Friðriksson. Friðrik hefur haft ljósmyndun að áhugamál frá því í nóvember á síðasta ári. Myndirnar á sýningunni eru allar frá árinu 2007 sú elsta frá því í byrjun janúar og sú nýjasta er tekin í lok september mánaðar. Allar nema ein eru teknar á Íslandi og flestar eru þær frá því í sumar utan tveggja haustlitamynda. Margar eru teknar í nágrenni Bifrastar. Friðrik hefur ekki enn getað helgað sig algjörlega ljósmyndun vegna skólagöngu og því að sinna starfi með skóla. Það er þó sjaldan sem hann hefur ekki myndavélina á lofti.
Flestar myndirnar eru til sölu:
- Hver mynd kostar 15.000 kr.
- Tvær myndir kosta 27.000 kr.
- Myndir sem eru ómerktar eru til sölu.
- Myndir merktar með rauðri doppu eru seldar.
- Mynd með gulri doppu er ekki til sölu.
Þeir sem hafa áhuga að sérpanta myndir, hvort sem er á ljósmyndapappír, striga eða annað, geta haft samband við Friðrik Pál. Hann á einnig mikið safn annarra mynda sem ekki komust á þessa sýningu.
GSM: 899 7817 (Tengiliður Alda: 899 5331)
Netfang: fridrik88@gmail.com
Heimasíða: www.flickr.com/photos/mcfrikki
Ef áhugi er fyrir að hitta listamanninn þá býr hann á svæðinu og er reiðubúinn að leiðbeina þeim sem vilja um sýninguna.