1. nóvember 2007
Sigurður Líndal ráðinn prófessor við lagadeild
Sigurður Líndal, prófessor emeritus, hefur verið ráðinn prófessor við lagadeild Háskólans á Bifröst frá 1. nóvember 2007. Sigurður mun kenna réttarsögu og þætti í stjórnskipunarrétti, réttarheimspeki og lagahugsun auk almennrar lögfræði og jafnframt mun hann sinna rannsóknum við skólann. Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, kvaðst vera ákaflega stoltur og ánægur með ráðningu Sigurðar að skólanum. „Sigurður Líndal hefur verið fremsti kennari í lögfræði hérlendis um áratuga skeið og hann hefur kennt hér við Háskólann á Bifröst við frábæran orðstír. Það er okkur mikill heiður að fá hann hér í fasta stöðu“, sagði dr. Ágúst Einarsson. Sigurður kvaðst ekki síður líta á það sem heiður fyrir sig að vera boðið þetta starf og taka við því með góðum hug. „Þetta mætti verða til eftirbreytni að nýta starfskrafta þeirra sem komnir eru yfir þau aldursmörk sem starfsgengi manna er oftast miðað við,“ sagði Sigurður jafnframt.