Fréttir
28. október 2007

Fjölsótt ráðstefna um menningarstarf

Ráðstefnugestir í Hriflu
Ráðstefna um tækifæri menningarstarfs fyrir samfélög utan höfuðborgarinnar var haldin í Háskólanum á Bifröst laugardaginn 27. október sl. Að ráðstefnunni stóðu Menningarráð Vesturlands og námsbraut í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst. Fjölmenni sótti ráðstefnuna og var góður rómur gerður að máli fyrirlesaranna Ágústar Einarssonar rektors, Njarðar Sigurjónssonar lektors og Signýjar Ormarsdóttur menningarfulltrúa á Austurlandi.  Á ráðstefnunni kynnti Steinþór Birgisson kvikmynd sem nú er unnið að um vesturfara og stuttmyndin Eyja eftir Dögg Mósesdóttur var sýnd en myndin er innlegg Daggar í alþjóðlega stuttmyndahátíð sem hún stýrir í Grundarfirði í febrúar á næsta ári. Kynning var frá Ljósmyndasafni Akraness og ljósmyndasýningin Vestur til Vesturs eftir Jacqueline Downey og Halldór Örn Gunnarsson var til sýnis sem og kynningarmyndband All Senses hópsins um Vesturland. Ráðstefnunni lauk með almennum umræðum.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri