Fréttir
26. október 2007

Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu talar á málstofu

Sigurður Jónsson framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu verður gestur á málstofu þriðjudaginn 30. október næstkomandi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra verður síðan gestur á málstofu þann 6. nóvember. Vegna sérstaka aðstæðna þurftu þau að skiptast á fundartímum en von hafði verið á ráðherra í þessari viku.

Í erindi sínu mun Sigurður fjalla um þróun í þjónustustarfsemi og tækifærin sem framundan eru.

Málstofur eru haldnar vikulega á starfstíma Háskólans á Bifröst. Þær eru á þriðjudögum og hefjast klukkan 15.30 og aðgangur er öllum heimill.  

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri