24. október 2007
Ljósmyndir Andrésar Kolbeinssonar á Kaffi Bifröst
Nú stendur yfir á Kaffi Bifröst ljósmyndasýning Andrésar Kolbeinssonar. Andrés er fæddur árið 1919 og ólst upp í Stóra-Ási í Borgarfirði. Hann var óbóleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands um nær þriggja áratuga skeið.
Andrés lauk burtfararprófi í óbóleik frá The Royal Manchester College of Music í Englandi árið 1947. Eftir heimkomuna hóf hann að leika með Útvarpshljómsveitinni og síðan Sinfóníuhljómsveit Íslands þegar hún var stofnuð. Hann gat þó ekki framfleytt sér og fjölskyldu sinni með tónlistinni einni saman og ljósmyndunin varð annað aðalstarf hans. Starfsferill Andrésar var fjölbreyttur, byggði á ljósmyndun, tónlistarflutningi, kennslu og nótnaskrifum og er nokkuð lýsandi fyrir þau kjör sem íslenskir listamenn bjuggu við á eftirstríðsárunum.
Reykjavíkurmyndir Andrésar frá árunum 1952 - 1965 þykja sérstök listaverk og var haldin yfirlitssýning á þeim í Ljósmyndasafni Reykjavíkur á síðastliðnu ári.
Andrés fylgist vel með tækninýjungum á sviði ljósmyndunar þrátt fyrir háan aldur. Hann býr nú í nágrenni Laugardalsins í Reykjavík og ljósmyndar gjarnan ýmislegt sem þar ber fyrir augu og má sjá afrakstur þess á Kaffi Bifröst.