22. október 2007
Ríkisútvarpið sendir út upptöku frá ráðstefnu um hlutverk Íslendinga á alþjóðlegum vettvangi
Málþing um hlutverk Íslendinga á alþjóðlegum vettvangi og hvað stjórnvöld geti lært af þátttöku Íslands í friðargæslu á síðustu árum var haldið í Háskólanum á Bifröst föstudaginn 19. október slþ
Á undanförnum árum hafa Íslendingar fengið umtalsverða reynslu af störfum á átaka- og hamfarasvæðum. Margir Íslendingar hafa starfað fyrir alþjóðastofnanir á borð við Rauða krossinn, OECD og Sameinuðu þjóðirnar, en stór hópur manna hefur einnig starfað tímabundið fyrir Íslensku friðargæsluna. Á málþinginu var spurt hvaða lærdóma hægt væri að draga af þessari reynslu.
Þátttakendur á málþinginu voru:
Anna Jóhannsdóttir, forstöðumaður Íslensku friðargæslunnar
Stefnumörkun og reynsla friðargæslunnar
Davíð Logi Sigurðsson, blaðamaður
Framboð og friðargæsla – hvaða hlutverki gegna blaðamenn
Jónas G. Allansson, friðargæsluliði og mannfræðingur
Á vettvangi friðargæslu í Afganistan og Sri Lanka
Guðni Th. Jóhannesson bregst við erindunum
Fundarstjóri var Jón Ólafsson, forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst.