Fréttir
24. október 2007

Menning sem atvinnugrein

Haust á Bifröst
 Ráðstefna um tækifæri menningarstarfs fyrir samfélög utan höfuðborgarinnar verður haldin í Háskólanum á Bifröst laugardaginn 27. október frá kl. 13.00 - 16.00. Að ráðstefnunni standa Menningarráð Vesturlands og námsbraut í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst. Dagskráin hefst á því að Helga Halldórsdóttir, formaður menningarnefndar Vesturlands, setur ráðstefnuna og Elísabet Haraldsdóttir menningarfulltrúi kynnir nokkur verkefni sem styrkt eru af menningarráði. Þrjú erindi verða flutt á ráðstefnunni. Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, flytur erindi sem hann kallar Menning sem atvinnugrein, Njörður Sigurjónsson lektor við félagsvísindadeild skólans nefnir sitt erindi Menning til höfuðs kapítalismanum og yfirskrift erindis Signýjar Ormarsdóttur, menningarfulltrúa á Austurlandi, er Norrænt samstarf, sköpun eða skipbrot. Á ráðstefnunni verður sýnt stutt brot úr kvikmynd sem nú er unnið að um vesturfara og mun Steinþór Birgisson kynna verkefnið. Þá verður sýnd stuttmyndin Eyja eftir Dögg Mósesdóttur en myndin er innlegg Daggar í alþjóðlega stuttmyndahátíð sem hún stýrir í Grundarfirði í febrúar á næsta ári. Kynning verður frá Ljósmyndasafni Akraness og ljósmyndasýningin Vestur til Vesturs eftir Jacqueline Downey og Halldór Örn Gunnarsson verður til sýnis sem og kynningarmyndband All Senses hópsins um Vesturland. Í lokin verða almennar umræður sem Njörður Sigurjónsson stjórnar. Ráðstefnan er öllum opin og eru  þeir sem vinna að menningarstarfi eða hafa áhuga á að efla menningu á landsbyggðinni hvattir til að taka þátt í henni.

 

Kynning á ráðstefnu (pdf)

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri