Fréttir
22. október 2007

Berglind Ásgeirsdóttir ráðuneytisstjóri fjallar um OECD á málstofu

 Berglind Ásgeirsdóttir ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu verður gestur á málstofu þriðjudaginn 23. október nk. Í fyrirlestrinum ræðir Berglind um störf Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD. Fjallað verður um samstarf hinna 30 aðildarríkja einkanlega á sviði heilbrigðis- og menntamála. Rætt verður um starfsaðferðir og samanburð milli landa. Sérstök grein verður gerð fyrir PISA rannsókninni sem ber saman gæði menntakerfa.

OECD fjallar mikið um samstarf í skattamálum og mun Berglind skoða stöðu Íslands í samanburði þjóðanna.

Málstofan hefst kl. 15.30 í Hriflu og stendur í klukkustund. Aðgangur er öllum heimill.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri