19. október 2007
Fjölsótt málþing í Háskólanum á Bifröst
 |
| Guðni Th. Jóhannesson, Jónas G. Allansson, Davíð Logi Sigurðsson og Anna Jóhannsdóttir |
Ísland á alþjóðavettvangi - erindi og ávinningur er yfirskrift háskólafundaraðar sem íslensk stjórnvöld efna til í vetur í samvinnu við alla háskóla landsins, átta talsins. Markmið háskólafundaraðarinnar er að hvetja til aukinnar upplýstrar umræðu um alþjóðamál á Íslandi. Á fundunum verður lögð áhersla á stöðu og hlutverk Íslands á alþjóðavettvangi. Þá verður einnig fjallað um þátttöku Íslands í alþjóðastarfi og einstök verkefni, ekki síst framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.
Viðfangsefni hvers fundar mun tengjast sérsviði háskólanna. Tillögur að fundar- og umræðuefnum koma frá þeim, og fræðimenn hvers háskóla taka þar virkan þátt. Það er ekki síst markmið fundaraðarinnar að styrkja tengsl milli utanríkisráðuneytisins og háskólasamfélagsins, í þágu enn betra stefnumótunarstarfs á sviði alþjóða- og utanríkismála.
Fundaröðin hófst föstudaginn 7. september sl. með opnunarmálþingi í Háskóla Íslands undir yfirskriftinni „Alþjóðasamstarf á 21. öld og Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna". Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra fluttu erindi og þarnæst héldu fræðimennirnir Alyson Bailes, Baldur Þórhallsson og Björg Thorarensen fyrirlestra.
Annar fundurinn í röðinni var svo haldinn í Háskólanum á Bifröst þann 19. október. Hann bar yfirskriftina "Hlutverk Íslendinga á alþjóðlegum vettvangi" og þar var rætt um friðargæslu og hvað íslensk stjórnvöld gætu lært af reynslu liðinna ára þar að lútandi.
Í kjölfarið verður efnt til funda í öðrum háskólum landsins þar sem fjölmörg svið alþjóðamála verða til umfjöllunar. Fundaröðinni lýkur á vordögum 2008 með ráðstefnu um Ísland og alþjóðamál.
Með háskólafundaröðinni taka íslensk stjórnvöld höndum saman með háskólasamfélaginu í landinu. Fundirnir eru öllum opnir, en það er von íslenskra stjórnvalda að fundaröðin verði til þess að efla umræðu um alþjóðamál og skerpa sýn á stöðu Íslands á alþjóðavettvangi, sem og á erindi og ávinning Íslendinga af alþjóðlegu samstarfi.
Á málþinginu á Bifröst fluttu erindi þau Anna Jóhannsdóttir forstöðumaður Íslensku friðargæslunnar, Davíð Logi Sigurðsson blaðamaður og fyrrverandi friðargæsluliði og Jónas G. Allansson mannfræðingur og friðargæsluliði. Guðni Th. Jóhannesson setti fram viðbrögð sín við erindum þeirra og í kjölfarið spunnust góðar umræður. Jón Ólafsson forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst stýrði málþinginu.