18. október 2007
Vífill fjallar um landfræðilegan breytileika íbúðaverðs í Tímariti um félagsvísindi
Vífill Karlsson á nýja grein í Tímariti um félagsvísindi sem gefið er út á vef Háskólans á Bifröst. Greinin ber yfirskriftina Modern industrial structure and development of house price spatial disparity: A general case for Iceland - a large but thinly populated European country.
Þróun á landfræðilegum breytileika íbúðaverðs er til skoðunar í þessari grein. Þessi breytileiki myndast vegna óska og forgangsröðunar neytenda á aðgengi sem borgir veita og náttúrugæða sem dreifbýli veitir. Samkvæmt útvíkkun Alonso’s á kenningum von Thünen’s, lýtur íbúðaverð í borgum og í dreifbýli ákveðnum lögmálum. Það er oftast hæst í borgum og lækkar eftir því sem fjær dregur og myndar þar með feril neikvæðs sambands á milli íbúðaverðs og fjarlægðar frá borg. Sýnt hefur verið fram á að þetta gildir fyrir Ísland sem og víða annars staðar í heiminum. Í þessari grein er gerð tilraun til að sýna fram á að halli þessa ferils verði sífellt brattari, vegna mikils vaxtar þekkingarfrekra atvinnugreina og þar með vaxandi breiddar- og lengdarhagræðis. Gagnagrunnur yfir Ísland frá 1981-2004 er notaður til að sannreyna þetta. Um er að ræða ársmeðaltöl þar sem Íslandi hefur verið skipt upp í 19 svæði.