16. október 2007
Bifrestingar í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur - Bryndís stjórnarformaður
Á fréttavef Morgunblaðsins er greint frá því að á fundi í borgarstjórn Reykjavíkur í dag verði kosið í ráð og nefndir borgarinnar. Í ljósi umræðu undanfarinna daga og vegna fyrirhugaðrar skoðunar á stöðu og framtíð Orkuveitu Reykjavíkur sem verður leidd af pólitískri forystu nýs meirihluta munu kjörnir fulltrúar meirihlutans draga sig úr stjórn fyrirtækisins meðan á skoðuninni stendur og tilnefna þess í stað sína trúnaðarmenn. Fulltrúi Samfylkingarinnar og stjórnarformaður verður Bryndís Hlöðversdóttir aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst, fulltrúi Vinstri grænna verður Ástráður Haraldsson hæstaréttarlögmaður og dósent við Háskólann á Bifröst og fyrir Framsóknarflokkinn tekur Jón Sigurðsson, fyrrv. Seðlabankastjóri og rektor á Bifröst um árabil, sæti en hann verður jafnframt varaformaður stjórnar.