16. október 2007
Eiríkur Bergmann Einarsson rannsakar stöðu Íslands í evrópsku samhengi
Eiríkur Bergmann Einarsson, dósent og forstöðumaður Evrópufræðaseturs Háskólans á Bifröst, hefur hlotið myndarlegan styrk úr rannsóknasjóði HÍ. Næstu misseri mun Eiríkur því einbeita sér að rannsóknum á stöðu Íslands í evrópsku samstarfi og greiningu á íslensku þjóðerni. Eiríkur mun að hluta vinna rannsókn sína í samstarfi við erlenda fræðimenn, en hann hefur ennfremur fengið stöðu gestafræðimanns við Kaupamannahafnarháskóla, sem felur í sér viðurkenningu á verkum hans sem fræðimanns.