Fréttir
15. október 2007

Þróun útsvars árin 2001 - 2006

Í nýútkomnum Hagvísi var álagt útsvar til skoðunar. Því hefur verið haldið fram að sveitarfélög hafi notið hagvaxtarskeiðsins og að álagt útsvar eigi að hafa hækkað um 29% að raungildi á tímabilinu 2001 - 2006. Þetta getur verið villandi alhæfing samkvæmt útreikningum sem kynntir eru í þessari skýrslu.

Á Vesturlandi hefur álagt útsvar þróast með misjöfnum hætti árin 2001 - 2006. Það hefur þróast allt frá því að dragast saman um 2% að raungildi eins og í Stykkishólmi og í að hækka um allt að 70% eins og í Eyja- og Miklaholtshreppi.

Ýmsar ástæður eru fyrir því að útsvar þróast með misjöfnum hætti hjá sveitarfélögunum. Hér eru taldar til sex ástæður sem útskýra stóran hluta þessarar þróunar á Vesturlandi. Þetta er svökölluð ehf. -væðing, fjölgun íbúa, tvöföld búseta, fjölgun eldri borgara, fjölgun íbúa á aldrinum 30 - 50 ára og fjöldi háskólanema.

Frekari greining gaf til kynna að þróun útsvars á viðkomandi tímabili er mjög misjöfn meðal sveitarfélaga á Íslandi. Svo virðist sem flokka megi þau í tvo ólíka hópa; sveitarfélög þar sem útsvar hækkar mikið og sveitarfólög þar sem útsvar hækkar lítið. Fyrri hópurinn er í um 150 km radíus frá Reykjavík og hinn er fjær. Sveitarfélög á Vesturlandi eru í báðum hópum. Þá skera þrjú sveitarfélög sig úr á Austurlandi með óvenju mikla hækkun vegna stóriðjuframkvæmda.

 

Hagvísir

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri