12. október 2007
Fjölsóttur kynningarfundur um nýja námsleið í stjórnun heilbrigðisþjónustu
 |
| Hamragarðar |
Kynningarfundur vegna nýrrar námsleiðar í meistaranámi við Háskólann á Bifröst fór fram á Hilton Reykjavik Nordica fimmtudaginn 11. okt. sl. Fundurinn var vel sóttur og mikill áhugi kom fram meðal fundarmanna á hinu nýja námi.
Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, bauð gesti velkomna og að því búnu steig fulltrúi heilbrigðisráðherra Guðrún Sigurjónsdóttir í ræðustól og ræddi um þá brýnu og vaxandi þörf sem fyrir hendi er fyrir hæfa stjórnendur á heilbrigðissviði. Ásta Dís Óladóttir, dósent við viðskiptadeild Háskólans á Bifröst, hefur haft veg og vanda af skipulagningu námsins ásamt fagfólki úr heilbrigðisstéttum. Hún fór yfir skipulag og innihald námsins; greindi frá aðdraganda þess og tengslum við hliðstætt nám í erlendum háskólum. Í máli hennar kom fram að kennarar í þessu námi verða innlendir og erlendir sérfræðingar. Ásta Dís svaraði því næst fyrirspurnum ásamt Maríu Þorgeirsdóttur, umsjónarmanni meistaranáms á Bifröst.
Ljóst varð af fyrirspurnum viðstaddra, sem margir voru úr röðum fagfólks í heilbrigðis- og umönnunarþjónustu, að gríðarmikill áhugi er fyrir slíku námi og þegar hafa fyrirspurnir borist víða að m.a. frá stjórnendum sjúkrahúsa í Svíþjóð og Danmörku.
Námið er kennt að hluta í fjarnámi með vinnu á vor- og haustmisseri og í staðnámi á tveimur sumrum þar sem nemendum gefst kostur á að búa með fjölskyldum sínum á Bifröst. Nánari upplýsingar um námið má finna á vef Háskólans á Bifröst.
Byrjað verður að taka við umsóknum um meistaranám í stjórnun heilbrigðisþjónustu þann 15. október næstkomandi og umsóknarfrestur rennur út þann 15. desember. Námið hefst með vinnuhelgi þann 18. janúar 2008 og gert er ráð fyrir að fyrstu nemendurnir útskrifist haustið 2009.