Fréttir
13. október 2007

Dr. Herdís Þorgeirsdóttir prófessor vinnur að breytingartillögum á tilmælum ráðherranefndar Evrópuráðsins

Feneyjanefnd Evrópuráðsins samþykkti á síðasta allsherjarfundi sínum tillögur Dr. Herdísar Þorgeirsdóttur og Owen Masters frá Bretlandi um breytingar á tilmælum ráðherranefndar Evrópuráðins (99) 15 um umfjöllun fjölmiðla í kosningabaráttu (Recommendation (99) 15 on Media Coverage of Election Campaigns). Í mars 2007 bað sérfræðingahópur á sviði mannréttinda í upplýsingasamfélaginu (MC-S-IS) Feneyjanefnd Evrópurráðsins um að taka þátt í endurskoðun á tilmælum (99) 15 um fjölmiðlaumfjöllun í kosningabaráttu. Dr. Herdís Þorgeirsdóttir (varafulltrúi Íslands í Feneyjanefndinni) vann skýrslu fyrir sérfræðingahópinn  og það gerði einnig Owen Masters, sérfræðingur á sviði fjölmiðla frá Bretlandi. Herdís Þorgeirsdóttir var síðan beðin að taka þátt í sjálfum undirbúningnum að breytingartillögum á tilmælum og fór sú vinna fram í byggingu Mannréttindadómstóls Evrópu í lok mars s.l. Á meðfylgjandi slóð má sjá framlag Herdísar Þorgeirsdóttur og Owen Masters sem Feneyjanefndin samþykkti http://www.venice.coe.int/docs/2007/CDL-AD(2007)022-e.asp.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri