 |
| Haustlauf á Bifröst |
Málþing um hlutverk Íslendinga á alþjóðlegum vettvangi og hvað stjórnvöld geti lært af þátttöku Íslands í friðargæslu á síðustu árum verður haldið í Háskólanum á Bifröst föstudaginn 19. október nk. og stendur frá kl. 10.30 - 13.00.
Bein útsending frá málþinginu verður á vef skólans og stendur frá kl. 10.30 - 13.00.
Á undanförnum árum hafa Íslendingar fengið umtalsverða reynslu af störfum á átaka- og hamfarasvæðum. Margir Íslendingar hafa starfað fyrir alþjóðastofnanir á borð við Rauða krossinn, OECD og Sameinuðu þjóðirnar, en stór hópur manna hefur einnig starfað tímabundið fyrir Íslensku friðargæsluna. Á málþinginu verður spurt hvaða lærdóma hægt er að draga af þessari reynslu. Hvers eðlis er friðargæslan? Hvar liggja mörkin á milli hernaðarlegra og borgaralegra verkefna? Hvaða verkefni eiga Íslendingar að forðast? Styrkir Íslenska friðargæslan framboð Íslands til Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna?
Þátttakendur á málþinginu verða:
Anna Jóhannsdóttir, forstöðumaður Íslensku friðargæslunnar
Stefnumörkun og reynsla friðargæslunnar
Davíð Logi Sigurðsson, blaðamaður
Framboð og friðargæsla – hvaða hlutverki gegna blaðamenn
Jónas G. Allansson, friðargæsluliði og mannfræðingur
Á vettvangi friðargæslu í Afganistan og Sri Lanka
Guðni Th. Jóhannesson bregst við erindunum
Auk þeirra sem hér eru taldir hefur fulltrúum frá háskólastofnunum í landinu, fjölmiðlum og Alþingi verið boðin þátttaka. Málþingið er öllum opið sem áhuga hafa. Fundarstjóri verður Jón Ólafsson, forseti félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst.
Bein útsending frá 10.30 - 13.00.
