9. október 2007
Nýtt meistaranám í stjórnun heilbrigðisþjónustu
Háskólinn á Bifröst mun frá og með næstu áramótum bjóða upp á nýtt meistaranám í stjórnun heilbrigðisþjónustu. Þjónusta á sviði heilbrigðismála er ört vaxandi þáttur í nútíma samfélagi sem nær m.a. til hefðbundinna lækninga og umönnunar á sjúkrahúsum og stofnunum. Margháttuð fyrirbyggjandi starfsemi er hluti af heilbrigðisþjónustu og til þess ætluð að bæta lífsgæði landsmanna. Fyrirséð er að einkarekin þjónustufyrirtæki á þessu sviði muni í vaxandi mæli hasla sér völl hér á landi, en einnig munu þau nýta þekkingu sína og reynslu og bjóða hliðstæða þjónustu í öðrum löndum. Heilbrigðisþjónusta verður hluti af alþjóðlegri þjónustustarfsemi og miðað við þá reynslu sem íslenskir aðilar hafa aflað sér á skyldum sviðum, s.s. á lyfja- og stoðtækjamarkaði, þá er mikið framundan á þessum vettvangi.
Þörf fyrir vel menntað fólk til þess að stjórna þessum fyrirtækjum er því afar brýn.
Fagráð meistaranámsins
Stjórnendanámið hefur verið í undirbúningi í allnokkurn tíma. Til þess að skilgreina nánar fyrirkomulag og námsframboð var skipað fagráð valinna einstaklinga sem þekkja vel til heilbrigðisþjónustu bæði á Íslandi og í öðrum löndum. Í fagráðinu sitja Anna Birna Jensdóttir, hjúkrunarforstjóri Sóltúns, Berglind Ásgeirsdóttir, ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu, Birgir Jakobsson, forstjóri Karólínska sjúkrahússins í Stokkhólmi, Gísli Einarsson yfirlæknir og fv. framkvæmdastjóri kennslu, vísinda og fræða á LSH, María Ólafsdóttir, heilsugæslulæknir Miðbæ og jafnframt yfirlæknir InPro og Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir Blóðbankans.
Sérstaða
Námið hefur alþjóðlega skírskotun og miðar að því að uppfylla ört vaxandi eftirspurn eftir vel menntuðum stjórnendum með þekkingu á heilbrigðisþjónustu. Nemendur geta stundað námið með vinnu sinni og lokið því á um einu og hálfu ári. Stefnt er að því að nemendahópurinn verði með fjölbreyttan bakgrunn sem skapar aukna víðsýni og styrkir samskiptanet þeirra í framtíðinni. Góð atvinnutækifæri og jafnframt möguleikar á að koma á fót eigin starfsemi í heilbrigðisþjónustu ættu að gefast að námi loknu.
Uppbygging námsins
Námið er kennt bæði í stað- og fjarnámi. Nemendur skulu ljúka 12 námskeiðum auk lokaverkefnis. Verkefnið getur bæði verið rannsóknarritgerð um tiltekið efni, sem og viðamikil viðskiptaáætlun um stofnun fyrirtækis á heilbrigðissviði og/eða að veita nýja heilbrigðisþjónustu á tilteknum markaði. Nemendur vinna verkefnið í samráði við leiðbeinanda sinn. Kennarar eru innlendir og erlendir sérfræðingar á sviði heilbrigðismála og viðskipta. Með góðu samstarfi við erlenda háskóla verður tryggt að námið standist fullkomlega alþjóðlegan samanburð.
Kynningarfundur
Kynningarfundur um meistaranám í stjórnun heilbrigðisþjónustu verður haldin á Hilton Reykjavik Nordica, fimmtudaginn 11. október frá 12.15 - 13.00. Þar flytur Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra ávarp og Ásta Dís Óladóttir kynnir námið.