Fréttir
4. október 2007

Málstofur á námskjánum

Lífsorkan eftir Ásmund Sveinsson
Framvegis verður upptökum af málstofum í Háskólanum á Bifröst komið fyrir á námskjá. Með þessum hætti gefst fjarnemum, meistaranemum og kennurum kostur á að fylgjast með málstofum og umræðum um efni þeirra og sitja því allir nemendur og kennarar skólans við sama borð hvað þetta varðar.

Málstofur eru haldnar vikulega, síðdegis á þriðjudögum og eru öllum opnar. Á haustmisseri hafa nú þegar verið haldnar fjórar málstofur; Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur, talaði um skugga hryðjuverka og skipan alþjóðamála, Björg Thorarensen, forseti lagadeildar HÍ,  um stjórnarskrána og utanríkismál, Friðrik Snorrason, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Nýherja, talaði um stafræna veröld og Eggert B. Guðmundsson, forstjóri Granda, um þróun sjávarútvegs hérlendis og erlendis.

Upplýsingar um málstofur sem fyrirhugaðar eru á haustmisseri má finna á vef skólans.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri