Fréttir
2. október 2007

Námsferð til Brussel

Evrópuþingið
 Nú er lokið velheppnaðri námsferð meistaranema í Evrópufræðum og menningarstjórnun til Brussel. Þetta var í fjórða sinn sem slík ferð er farin frá Háskólanum á Bifröst. Dagskrá ferðarinnar hófst mánudaginn 24. september. Fulltrúi skrifstofustjóra ESA, eftirlitsstofnunar EFTA, kynnti starfsemi stofnunarinnar. Ásta Magnúsdóttir, skrifstofustjóri EFTA kynnti starfsemi EFTA og Stefán Haukur Jóhannesson sagði frá starfsemi sendiráðs Íslands í Brussel. Högni S. Kristjánsson, sendifulltrúi ræddi um stofnanir ESA, EFTA og EES, greint var frá rannsóknaráætlunum Evrópusambandsins og Kristrún Kristinsdóttir sendiráðunautur talaði um Schengensamstarfið. Dagskrá mánudags lauk með móttöku í sendiráði Íslands.

 Á þriðjudeginum var SHAPE heimsótt - Supreme Headquarters Allied Powers in Europe - hernaðararmur NATO. Formlegri dagskrá lauk þann daginn á skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga í Brussel en þar tók Anna Margrét Guðjónsdóttir, forstöðumaður skrifstofunnar, á móti hópnum og greindi frá starfi sínu og væntingum.

Á miðvikudegi voru höfuðstöðvar NATO heimsóttar og þar fengu gestirnir greinargóða fræðslu um starfsemi og hlutverk samtakanna.

Á fimmtudegi tók Árni Snævarr, upplýsingafulltrúi svæðisskrifstofu Sameinuðu þjóðanna fyrir Vestur-Evrópu (UNRIC) á móti hópnum og greindi frá starfi sínu. Talsmenn fastanefndar Slóveníu gagnvart Evrópusambandinu hittu hópinn og sögðu frá starfi fastanefndarinnar. 

Loks var fundað með Lars Olof Hollner sem starfar í stjórnarskrifstofu um utanríkismál í framkvæmdastjórn ESB en Lars fer með málefni Íslands og EFTA í framkvæmdastjórninni.

Á föstudegi var farið í Ráðherraráðið sem er valdamesta stofnun ESB og sá vettvangur þar sem aðildarríkin gæta hagsmuna sinna. Að lokinni heimsókn í ráðið var haldið í Evrópuþingið þar sem fram fór kynning á starfsemi þess.

Nemendur láta ákaflega vel af ferðinni sem þeir segja að hafi verið strembin en afar lærdómsrík.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri