Fréttir
2. október 2007

Dr. Thomas Kowall ræðir við nemendur á Bifröst

Dr. Thomas Kowall, prófessor við École Nationale des Ponts et Chaussées í París, stýrir umræðum í kennslustund í þjóðhagfræði föstudaginn 5. október næstkomandi.  Auk prófessorsstarfsins hefur dr. Kowall starfað að ráðgjafaverkefnum fyrir fyrirtæki og háskóla um allan heim.   

Að loknum hefðbundnum fyrirlestri kl. 10.00 hefst umræðutími í umsjón dr. Kowall. Þar verður sýndur viðtalsþátturinn "Action at a Distance: Friedman and Stiglitz on Technology, Economic Development and Social Equity". Dr. Kowall mun síðan taka saman meginhugmyndirnar sem fram koma í samtali Friedman og Stiglitz auk þess sem hann kynnir aðra sýn á þau málefni sem rædd eru í þættinum. Að lokum verða almennar umræður.

Það er mikill fengur fyrir Háskólann á Bifröst að fá dr. Thomas Kowall til að ræða við nemendur um sýn sína á heimsvæðinguna þar sem hann hefur fjölþætta alþjóðlega reynslu, bæði úr viðskiptaheiminum og háskólasamfélaginu. Kennari námskeiðsins er dr. Lilja Mósesdóttir prófessor.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri