Fréttir
25. september 2007

Tónleikar Camerarctica á miðvikudag

Hljómsveitin Camerarctica hefur starfað frá árinu 1992 en þá komu hljóðfæraleikararnir heim frá námi við tónlistarháskóla erlendis. Þeir starfa nú flestir við Sinfóníuhljómsveit Íslands auk þess að koma fram sem einleikarar.  Efnisskrá hópsins markast af hljóðfæraskipaninni, sem er flauta, klarinett og strengir og spannar verk frá klassíska tímanum allt til nútímans. Camerarctica hefur staðið að og tekið þátt í tónlistarhátíðum, m.a. í minningu tónskáldanna Hindemith og Fauré, og Schubert og Brahms, Myrkum músíkdögum, Listahátíð í Reykjavík og Norrænum músíkdögum og m.a. frumflutt allmörg verk eftir íslensk tónskáld. Camerarctica og Norræna húsið standa fyrir árlegri tónlistarhátíð, Norrænum sumartónum, þar sem flutt eru verk eftir íslensk og önnur norræn tónskáld í Norræna húsinu. Einnig hefur hópurinn komið fram á tónleikum Kammermúsikklúbbsins á hverju ári frá árinu 1997 og flutt m.a. við þau tækifæri 10 af strengjakvartettum Shostakovits. Camerarctica hefur hlotið verðskuldaða athygli fyrir flutning sinn á verkum W.A. Mozarts, en hópurinn hefur árlega frá 1993 haldið afar fjölsótta tónleika á aðventu undir yfirskriftinni „Mozart við kertaljós” og hefur hljóðritað tvo geisladiska með verkum hans.

Camerarctica skipa þau:

  • Ármann Helgason, klarinett
  • Hallfríður Ólafsdóttir, flauta
  • Hildigunnur Halldórsdóttir fiðla
  • Jónína Auður Hilmarsdóttir, víóla
  • Sigurgeir Agnarsson, selló 

 

Háskólatónleikar á Bifröst eru að öllu jöfnu haldnir síðasta miðvikudag í mánuði og hefjast klukkan 17.00. Þeir eru öllum opnir og aðgangur er ókeypis.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri