Fréttir
19. september 2007

Árbók verslunarinnar 2007

Rannsóknasetur verslunarinnar hefur gefið út Árbók verslunarinnar 2007 – hagtölur um íslenska verslun, í samstarfi við Kaupmannasamtök Íslands. Í Árbókinni eru viðamiklar tölfræðilegar upplýsingar um þróun verslunar hér á landi á undanförnum árum. Bókin inniheldur ýmsar upplýsingar um ytri skilyrði verslunar, umfang, vöxt einstakra tegunda,  afkomu verslunar í heild og eftir landssvæðum. Einnig er að finna í bókinni kort sem sýna dreifingu lágvöruverðsverslana í landinu.

 

Hægt er að skoða árbókina með því að smella á hnapp á síðu Rannsóknaseturs verslunarinnar. Einnig er hægt að panta hana og fá senda í prentuðu formi.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri