19. september 2007
Prófessor Ívar Jónsson birtir bókarkafla um vinnumarkaði Vestur-Norðurlanda
Í bókinni er leitað svara við spurningum á borð við: Hvað sameinar vestnorrænu löndin Ísland, Færeyjar og Grænland og hvað greinir þau að þegar fjallað er um atvinnulíf, heilsufar, jafnréttismál og almenna velferð? Að hvaða leyti endurspeglar umræðan um norrænt velferðarkerfi stöðu mála í þessum löndum?
Um síðustu aldamót setti Norræna ráðherranefndin í gang rannsóknarverkefni þar sem markmiðið var að skoða stöðu velferðarmála á Norðurlöndunum, sérstaklega út frá þáttum er lúta að atvinnu, heilsu, jaðarhópum, neytendamálum, jafnrétti og stöðu kynjanna. Fljótlega kom í ljós að ríkjandi orðræða um norræna velferð á ekki að öllu leyti vel við um velferðarmálin á Íslandi, Færeyjum og Grænlandi, enda eru þessi lönd sjaldan höfð með í opinberri umræðu um norræna velferðarkerfið.
Því voru haldnar tvær ráðstefnur þar sem ljósinu var varpað sérstaklega á velferð og lífsskilyrði í vestnorrænu löndunum þremur. Í kjölfarið var ákveðið að gefa út greinasafnið Arbejde, helse og velfærd i Vestnorden um þau atriði sem helst bar á góma á ráðstefnunum. Hér má nefna þætti sem lúta að almennri velferð, lífsskilyrðum, félagslegri stöðu, heilsufari, atvinnumálum, stöðu kynjanna og lýðræði. Í bókinni eru 15 greinar eftir jafnmarga höfunda, sem hafa ólíkan fræðilegan bakgrunn, en hafa stundað velferðarrannsóknir og tengst þjóðfélagsumræðu þessara landa. Jonathan Motzfeldt formaður Vestnorræna ráðsins fylgir bókinni úr hlaði með ritun formála.
Greinasafnið Arbejde, helse og velfærd i Vestnorden er skrifað á dönsku, sænsku og norsku. Því er ætlað að bæta úr brýnni þörf á fræðilegu efni um velferðarmál á Íslandi, í Færeyjum og á Grænlandi. Einnig má líta á greinarnar sem grundvöll stefnumótunar á sviði velferðarmála í þessum löndum. Háskólaútgáfan gefur bókina út. Ritstjóri er Guðbjörg Linda Rafnsdóttir.