14. september 2007
Náms- og starfsráðgjöf aukin
 |
| Ragnheiður og Erla Hrönn |
Ragnheiður Bóasdóttir hefur verið ráðin í starf náms- og starfsráðgjafa við Háskólann á Bifröst. Auk hennar starfar þar Erla Hrönn Vilhjálmsdóttir, cand. psych. Ragnheiður lauk BA prófi í ensku, námi til kennsluréttinda og MA prófi í náms- og starfsráðgjöf frá Háskóla Íslands. Hún er um þessar mundir að ljúka námi í hugrænni atferlisfræði frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands. Undanfarin 11 ár hefur Ragnheiður unnið við náms- og starfsráðgjöf við Fjölbrautaskólann við Ármúla.
Erla Hrönn Vilhjálmsdóttir hefur gegnt starfi náms- og starfsráðgjafa og sálfræðings við Háskólann á Bifröst um nokkurra ára skeið. Að sögn bætist henni nú kærkominn liðsauki ekki síst í ljósi þess hversu ört Háskólinn á Bifröst hefur stækkað á undanförnum misserum.
Starfsemi náms- og starfsráðgjafarinnar var nýlega flutt úr gamla skólahúsinu og yfir í Hamragarða. Skrifstofur Erlu og Ragnheiðar eru á fyrstu hæð í Hamragörðum og eru viðtalstímar þeirra auglýstir á vef skólans.